HYDRO VEIL er djúpnærandi rakakrem hannað til að veita húðinni hámarks raka.
Formúlan inniheldur Tara Seed Extract sem viðheldur rakastigi húðarinnar, ásamt
Tripeptide 1 og Tetrapeptide-7 sem örva náttúrulega kollagen framleiðslu og auka
stinnleika. Með B5-vítamíni og náttúrulegum plöntuefnum styrkir kremið varnarlag
húðarinnar og ver hana fyrir skaðlegum ytri áhrifum. Regluleg notkun sléttir áferð
húðarinnar og dregur úr sýnileika fínna lína svo hún geislar af heilbrigði.
Tara-fræin innihalda mikið af náttúrulegum fjölsykrum (polysaccharides). Þessar sykrur
hindra rakatap en þær mynda þunna, ósýnilega filmu á húðinni sem heldur rakanum
inni. Tara-fræin innihalda verndandi eiginleika, þær styrkja náttúrulega varnarlagið (skin
barrier) gegn ytri áhrifum eins og mengun og veðurfari.
Húðin okkar er að mestu gerð úr próteinum, þar á meðal kollageni og elastíni, sem
halda húðinni stinnri, sléttri og unglegri. Með aldrinum dregur úr framleiðslu á þessum
próteinum.
Trípeptíð virka eins og boðsameindir (signaling molecules). Þegar þú berð þau á húðina
„senda þau boð“ til frumnanna (trefjafrumna) um að þær eigi að framleiða meira
kollagen og elastín.
Helstu eiginleikar:
- Auka stinnleika: Þau örva náttúrulega kollagenframleiðslu húðarinnar.
- Draga úr línum: Með því að fylla upp í byggingu húðarinnar verða fínar línur og hrukkur mun minna sýnilegar.
- Húðviðgerð: Þau hjálpa húðinni að jafna sig eftir skemmdir og styrkja varnarlag hennar.
- Öflug virkni: Vegna þess að þau eru svo smá í sniðum (stuttar keðjur), eiga þau auðveldara með að smjúga inn í húðlögin en stærri próteinsameindir.




