Sleep Tight – 50ml

15.925 kr.

Á lager

Vörunúmer: 21 Flokkur: Brand:

SLEEP TIGHT er kröftugur andlitsmaski sem endurnærir húðina og lífgar upp á hana
yfir nóttina, svo hún vakni björt, fersk og tilbúin fyrir daginn. Þessi undra maski
inniheldur 10% C-vítamín, öflugt andoxunarefni sem örvar blóðflæði, og mjólkurþistil (e.
Milk Thistle) sem hjálpar til við að koma í veg fyrir niðurbrot á kollageni og elastíni.
Gúrkuþykkni (e. Cucumber Extract) dregur úr ertingu á meðan hýalúrónsýra, sykurefni
(e. Isomerate Complexes), glýkógen og glýserín vinna saman að því að viðhalda
hámarks rakastigi húðarinnar.

Helstu eiginleikar:

  • Öflug andoxun: 10% C-vítamín gefur húðinni aukinn ljóma og jafnar tóninn.
  • Viðgerð á varnarlagi: Styður við náttúrulegt varnarlag húðarinnar og endurbyggir það.
  • Styrktaruppbygging: Mjólkurþistill verndar kollagen og elastín húðarinnar, sem stuðlar að auknum stinnleika.
  • Djúp rakagjöf: Einstök blanda rakaefna sem læsir raka inni í húðinni yfir nóttina.